Rúnar Kristins: Engin barátta í mönnum
Auglýsing

Rúnar sagði lið sitt spila hörmulega í dag

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR tapaði 1-0 á móti Breiðablik á Kópavogsvelli í kvöld og eru því dottnir út úr Mjólkurbikarnum þetta árið. Rúnar Kristinsson þjálfari KR sagði liðið bara hafa verið mjög lélegt í dag.
„Við spiluðum ekkert sérstaklega, við vorum mjög daprir í allan dag, það byrjaði bara strax frá fyrstu spyrnu og til þeirrar síðustu og við áttum ekkert skilið úr þessum leik.\"
KR liðið var mjög hægt í sínum sóknaraðgerðum í dag og Rúnar sagði að þegar liðið byrjar leikinn svona illa er erfitt að ná upp einhverju spili.
„Það er mjög erfitt að breyta gangi leiks þegar þú byrjar svona illa, menn voru mjög hræddir og þorðu ekki að spila, það var enginn barátta í mönnum.\"
Sindri Snær Jensson markmaður KR meiddist í dag og segir Rúnar að ökklinn á honum sé bólginn en þeir voni það besta.
„Hann er að grípa boltann og leikmaður Blika keyrir inn í hann og hann lendir illa bara á ökklanum og snýr hann. Hann er stökkbólginn og varð að fara útaf.\"