Fotbolti.net
30.06.12 - 13:30
Ívan Guðjón Baldursson

Steven Whittaker til Norwich (Staðfest)

Steven Whittaker til Norwich (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Norwich City hefur staðfest komu skoska landsliðsmannsins Steven Whittaker í herbúðir sínar.

Whittaker er fjölhæfur varnarmaður sem getur spilað í öllum stöðum í vörn og á miðju, en hann kemur frá Rangers í Skotlandi.
Whittaker kemur frítt til félagsins en hann er einn leikmanna Rangers sem fengu að fara frítt frá félaginu nú á dögunum vegna eigendaskipta félagsins.

,,Steven er gríðarlega fjölhæfur leikmaður. Hann getur spilað hvar sem er í vörninni og á miðjunni, mikið af fjölhæfni þar,\" sagði Chris Hughton, knattspyrnustjóri Norwich.

,,Hann er vanur að spila á háu stigi með Rangers, hann er gríðarlega leikreyndur og á landsleiki að baki fyrir Skotland. Það er klárt að úrvalsdeildin mun ekki reynast of stórt skref fyrir hann.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.