30.06.12 - 17:20
Ívan Guðjón Baldursson
Kanoute farinn til Beijing Guoan (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Frederic Kanoute er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við kínverska knattspyrnufélagið Beijing Guoan.
Kanoute fer til Guoan eftir sjö ára veru hjá Sevilla í spænsku efstu deildinni, en hann kom þangað frá Tottenham.

Kanoute hefur spilað hátt í 300 leiki fyrir Sevilla og skorað í þeim 136 mörk og verið lykilmaður í tveimur Evrópudeildarsigrum félagsins.
Kanoute er 34. ára gamall Malíbúi, en Sevilla skrifaði í yfirlýsingu sinni að Kanoute sé einn besti leikmaður sem hefur nokkurn tímann spilað fyrir félagið.
,,Þessi goðsagnakenndi sóknarmaður Sevilla, mögulega sá besti á síðustu árum og jafnvel í sögu félagsins, hefur skrifað undir tveggja ára samning við Beijing Guoan,\" stendur í yfirlýsingu á opinberri vefsíðu Sevilla.