Fotbolti.net
30.07.03 - 00:00

Jordi Cruyff til Espanyol (Staðfest).

Saga Alavés hefur verið nokkuð furðuleg síðustu ár, klúbburinn er frá litlum bæ á norðurhluta Spánar og þótti það stórfurðulegt að liðið næði að komast í efstu deild og ennþá furðulegra þegar þeir náðu Evrópusæti. Ekki var það þó nóg fyrir þetta litla lið sem náði að krækja í marga góða og ódýra leikmenn, þeir töpuðu svo naumlega gegn Liverpool í framlengingu í úrslitum UEFA-bikarsins. Liverpool hafði áður náð að sigra nágrannalið Alavés, Barcelona.
Eftir leiktíðina voru leikmenn liðsins mjög vinsælir og voru seldir til liða eins og AC Milan. Þá fór að halla undanfæti hjá þessu frækna liði og féll það í aðra deild að loknu síðasta tímabili.

Einn þeirra sem var hluti af öllu þessu ævintýri var fyrrum leikmaður Barcelona og Manchester United Jordi Cruyff sonur Johan Cruyff sem er talinn einn besti leikmaður allra tíma og goðsögn í Katalóníu. Nú hefur Jordi hins vegar ákveðið að snúa aftur til Barcelona þar sem hann ólst upp og ætlar að leika með litla liðinu í borginni, Espanyol. Þar verður hann undir stjórn Javier Clemente og mun framherjinn líklegast styrkja liðið mikið sem hefur verið í neðri hlutanum undanfarin ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.