30.07.12 - 13:30
Magnús Már Einarsson
Chukwudi Chijindu í Þór (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Þórsarar hafa fengið bandaríska framherjann Chukwudi Chijindu í sínar raðir en hann kemur til landsins á morgun.
Þessi 26 ára gamli leikmaður lék síðast með Wilmington Hammerheads í Bandaríkjunum en hann hefur einnig verið á mála hjá Chivas í MLS deildinni sem og Miami FC og Los Angeles Blues.
Chijindu gerir samning við Þórsara út tímabilið en hann gæti leikið sinn fyrsta leik með liðinu gegn Haukum á fimmtudag.
Þórsarar vonast til að styrkja sig ennþá meira áður en félagaskiptaglugginn lokar á miðnætti á morgun.
,,Ég er ekkert hrikalega bjartsýnn en hin liðin eru að losa menn og lána og við lítum eitthvað í kringum okkur með það. Það er samt ekkert í hendi,\" sagði Páll Viðar Gíslason þjálfari Þórs við Fótbolta.net í dag.