30.07.12 - 14:31
Magnús Már Einarsson
Dofri Snorrason í Selfoss (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Selfoss hefur fengið Dofra Snorrason á láni frá KR út tímabilið en hann hefur fengið leikheimild með liðinu.
Hann er annar KR-ingurinn sem Selfyssingar fá á láni í þessum mánuði en miðjumaðurinn Egill Jónsson kom einnig á láni frá Íslands og bikarmeisturunum um helgina.

Dofri er 22 ára gamall og getur leikið bæði sem hægri bakvörður og kantmaður en samkvæmt heimildum sunnlenska.is hyggst Logi Ólafsson, þjálfari, nota Dofra á hægri kantinum.
Dofri er uppalinn KR-ingur og hefur hann leikið 33 deildarleiki fyrir félagið. Hann var lánaður til Víkings sumarið 2010 og lék þrettán leiki með liðinu í 1. deildinni.
Hann spilaði 17 leiki fyrir KR í Pepsi-deildinni í fyrrasumar og var þeim gríðarlega mikilvægur á lokasprettinum í deildinni. Hann hefur komið við sögu í sjö deildarleikjum KR í sumar.
Dofri hefur leikið þrjá U17 landsleiki og fjóra leiki fyrir U21 liðið.