30.07.12 - 18:43
Elvar Geir Magnússon
Joe Tillen í Val (Staðfest)

Joe Tillen í leik með Selfossi gegn Fram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Joe Tillen er genginn til liðs við Val en hann skrifaði í dag undir tveggja ára samning við félagið.
Tillen komst að samkomulagi við Selfoss í síðustu viku um að rifta samningi við félagið.

Þessi 25 ára gamli enski kantmaður kom fyrst til Íslands árið 2008 þegar hann gekk til Fram á svipuðum tíma og bróðir hans Sam. Áður hafði hann leikið með unglinga og varaliði Chelsea.
Joe lék með Fram í þrjú ár áður en hann gekk til liðs við Selfyssinga í fyrra og hjálpaði liðinu að komast upp í Pepsi-deildina.
Í sumar hefur Joe skorað eitt mark í átta leikjum í Pepsi-deildinni en náði ekki að vinna sér inn fast sæti í liðinu.
Valsmenn unnu Selfyssinga í gær 1-0 en Valur er í sjöunda sæti með 18 stig. Selfoss er í erfiðri stöðu í fallsæti, fimm stigum frá öruggu sæti sem stendur.