Fotbolti.net
30.07.18 - 12:12
Arnar Daði Arnarsson

Dean Martin tekur við Selfossi (Staðfest)

Dean Martin tekur hér í hönd Jóns Steindórs formanns Selfoss.

Dean Martin tekur hér í hönd Jóns Steindórs formanns Selfoss.

Canon

Mynd: Selfoss

Selfyssingar hafa ráðið Dean Martin sem þjálfara liðsins í Inkasso-deildinni. Þetta var tilkynnt á fréttamannafundi sem haldin var á Selfossi í hádeginu.

Dean Martin tekur við af Gunnari Borgþórssyni sem hætti störfum á föstudaginn síðastliðinn. Samningur Dean Martin við Selfoss er út tímabilið.
Fyrsti leikur Selfoss undir stjórn Dean Martin verður á miðvikudaginn þegar liðið tekur á móti ósigruðum HK-ingum sem sitja á toppi deildarinnar eftir 14. umferðir.

Dean Martin var síðast í aðstoðarþjálfari Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar með kínverska kvennalandsliðið. Sigurði var hinsvegar sagt upp störfum í maí mánuði og hætti Dean Martin störfum á sama tíma.

Selfoss er í næsta neðsta sæti Inkasso-deildarinnar með 11 stig, tveimur stigum á eftir ÍR, Njarðvík og Haukum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.