Fotbolti.net
30.07.18 - 20:47
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

ÍA fær miðjumann sem var hjá Liverpool (Staðfest)

Við undirskrit. Vincent er fyrir miðju en með honum á myndinni eru Jóhannes Karl og Heimir Fannar Gunnlaugsson, stjórnarmaður hjá ÍA.

Við undirskrit. Vincent er fyrir miðju en með honum á myndinni eru Jóhannes Karl og Heimir Fannar Gunnlaugsson, stjórnarmaður hjá ÍA.

Canon

Mynd: ÍA

ÍA ætlar sér að gera harða athlögu að því að komast aftur í Pepsi-deildina. Danski sóknarmaðurinn Jeppe Hansen kom frá Keflavík á láni fyrir tæpri viku síðan og í kvöld sendi félagið frá sér tilkynningu þar sem tilkynnt um nýjan leikmann, hollenska miðjumanninn Vincent Weijl.
Vincent mun spilað með Skagamönnum út þessa leiktíð. Vincent er 27 ára miðjumaður og hefur umtalsverða reynslu að baki.

Hann kemur úr unglingaakademíu AZ Alkmaar og var á samningi hjá Liverpool á sínum tíma. Á atvinnumannaferil hans hefur Vincent spilað með liðum í Danmörku, Hollandi, Spáni og Malasíu svo dæmi séu tekin. Hann á jafnframt að baki unglingalandsleiki með U-19 og U-20 í Hollandi.

Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, er mjög ánægður með liðsstyrkinn.

„Ég er mjög sáttur með að fá reynslumikinn miðjumann eins og Vincent Weijl til liðs við ÍA. Þetta er fjölhæfur leikmaður sem hefur gert góða hluti hjá mörgum liðum og slík reynsla er mikilvæg fyrir liðið okkar. Við höfum þannig náð að styrkja liðið umtalsvert í félagaskiptaglugganum og við munum nú leggja okkur alla fram um að taka toppsætið í Inkasso-deildinni,\" sagði Jóhannes við heimasíðu Skagamanna, en ÍA er í öðru sæti Inkasso-deildarinnar.

Skagamenn spila við Hauka á miðvikudag á Gaman Ferða vellinum á Ásvöllum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.