Fotbolti.net
30.07.18 - 09:54
Elvar Geir Magnússon

Jesus Suarez til ÍR (Staðfest)

Jesus Suarez í leik með Leikni Fáskrúðsfirði.

Jesus Suarez í leik með Leikni Fáskrúðsfirði.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Um helgina var gengið frá félagaskiptum Jesus Suarez til ÍR frá Leikni Fáskrúðsfirði.
Suarez er 30 ára miðju- og varnarmaður sem hefur verið lykilmaður hjá Fáskrúðsfirðingum frá árinu 2016, alls leikið 56 leiki og skorað 4 mörk.

Hann hefur skrifað undir samning við ÍR út sumarið og er löglegur í næsta leik liðsins sem er gegn Þrótti á miðvikudagskvöld.

Fyrir viku gengu tveir Kópavogspiltar til liðs við ÍR, framherjinn Ágúst Freyr Hallsson og varnarmaðurinn Skúli Sigurz.

„Enn eru 2 dagar eftir af leikmannaglugganum þetta sumarið svo enn gætu einhverjar fréttir borist úr Breiðholtinu,\" segir á heimasvæði ÍR á Facebook.

ÍR er í tíunda sæti Inkasso-deildarinnar, tveimur stigum frá fallsæti. Stöðuna má sjá hér að neðan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.