Fotbolti.net
30.07.18 - 11:00
Arnar Daði Arnarsson

Kristján Atli í Aftureldingu (Staðfest)

Kristján Atli í leik gegn Aftureldingu, hér í baráttunni gegn aðstoðarþjálfara Aftureldingu, Magnús Má Einarsson.

Kristján Atli í leik gegn Aftureldingu, hér í baráttunni gegn aðstoðarþjálfara Aftureldingu, Magnús Má Einarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Afturelding hefur fengið til sín Kristján Atla Marteinsson frá Magna en Afturelding er í 2. sæti 2. deildarinnar í mikilli baráttu um sæti í Inkasso-deildinni að ári.

Magni er hinsvegar á botni Inkasso-deildarinnar.
Kristján Atli lék 10 leiki með Magna í Inkasso-deildinni í sumar en hann hefur komið víða við þrátt fyrir ungan aldur en Kristján Atli er 22 ára og uppalinn í HK.

Auk þess að hafa spilað með Magna þá lék hann með Selfossi í 1. deildinni sumarið 2015, Fjarðabyggð í 2. deildinni sumarið 2014 og þá lék hann tvo leiki með HK í 1. deildinni sumarið 2013.

Afturelding heimsækir Víði heim í Garðinn á miðvikudaginn og gæti Kristján Atli spilað sinn fyrsta leik fyrir Aftureldingu þá. Eftir að hafa verið óstöðvandi í 2. deildinni í upphafi sumars hefur Afturelding aðeins innbyrt tvö stig í síðustu fjórum leikjum og sitja þeir nú í 2. sæti deildarinnar með jafn mörg stig og Kári sem eru í 3. sætinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.