Fotbolti.net
30.07.18 - 12:46
Elvar Geir Magnússon

Lemar til Atletico Madrid (Staðfest)

Lemar er mættur til Atletico.

Lemar er mættur til Atletico.

Canon

Mynd: Getty Images

Franski landsliðsmaðurinn Thomas Lemar er formlega orðinn leikmaður Atletico Madrid.

Þessi 22 ára leikmaður stóðst læknisskoðun hjá spænska félaginu en hann kemur frá Mónakó.

Lemar hafði komist að samkomulagi við Atletico meðan á HM í Rússlandi stóð en nú er búið að ganga frá öllum lausum endum.

Tveir aðrir Frakkar eru hjá Atletico, Antoine Griezmann og Lucas Hernandez.
„Ég er mjög ánægður með að vera mættur hingað. Antoine og Lucas hafa sagt mér mikið um félagið. Ég er mjög ánægður með þessa ákvörðun. Ég veit að hjá þessu félagi er krafist þess að maður leggi mikið á sig og ég mun gera allt fyrir liðið. Ef ég þarf að hlaupa meira þá er það ekki vandamálið,\" segir Lemar.

Lemar spilaði einn leik með Frökkum á HM en liðið stóð uppi sem sigurvegari eins og allir lesendur vita. Þá varð hann franskur meistari með Mónakó 2017.

🏧 🔴⚪️🔴 Thomas Lemar will play with the number '11'!#AúpaAtleti #WelcomeLemar pic.twitter.com/59OvFwpeGK

— Atlético de Madrid (@atletienglish) July 30, 2018
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.