Fotbolti.net
30.07.18 - 16:42
Elvar Geir Magnússon

Mitrovic aftur til Fulham (Staðfest)

Mitrovic í leik með Newcastle.

Mitrovic í leik með Newcastle.

Canon

Mynd: Getty Images

Nýliðar Fulham í ensku úrvalsdeildinni eru búnir að ganga frá kaupum á serbneska framherjanum Aleksandar Mitrovic frá Newcastle United.

Mitrovic gerði 17 mörk og lagði upp 10 mörk í 62 leikjum fyrir Newcastle en átti erfitt með að brjóta sér leið í byrjunarliðið á síðustu leiktíð.

Hann fór því á láni til Fulham seinni hluta tímabilsins og skoraði 12 mörk í 17 leikjum.

Stuðningsmenn Fulham eru í skýjunum með að hafa tryggt sér þjónustu Mitrovic og bíða nú eftir því að félagið <a href=\"https://fotbolti.net/fullStory.php?id=258942\" target=\"_blank\">staðfesti Alfie Mawson</a>.

Welcome home, Aleksandar Mitrović!

🖊️: https://t.co/1MwA3VTEaO#HereToStay 🔥 pic.twitter.com/pPMKsJxgx6

— Fulham Football Club (@FulhamFC) July 30, 2018
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.