29.07.26 - 21:31
Magnús Atlason
Heimir Guðjóns: Hann tók því eins og maður
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Fylkir og Völsungur áttust við í 16. umferð Lengjudeildarinnar í Árbænum. Fylkir sigraði leikinn 3-1 eftir fjörugan seinni hálfleik. Fótbolti.net var að sjálfsögðu á staðnum og náði viðtali við Heimi Guðjónsson þjálfara Fylkis eftir leik.
"Frábært að vinna og við sýndum karakter í seinni hálfleik og mér fannst við hafa ágætis tök á leiknum í fyrri hálfleik. Við fengum á okkur klaufalegt mark í seinni hálfleik og það tók okkur smá tíma að jafna okkur á því, við gerðum það og á endanum var þetta sanngjarn sigur"
Eftir slæma byrjun á seinni hálfleik gerði Heimir fjórfalda breytingu. Var það áhætta sem þurfti að taka?
"Já, eftir að við fengum á okkur markið hélt ég að við myndum stíga upp en við gerðum það ekki. Mér fannst kominn tími á að breyta einhverju og að fá ferska fætur inn. Þeir fjórir sem komu inn komu allir með eitthvað að borðinu og þeir stóðu sig vel."
Theodór Ingi var valinn maður leiksins eftir að hafa komið inn á af bekknum og sett 2 mörk.
"Frábær innkoma, þegar hann hefur komið inn á og þegar hann hefur fengið að spila. Það var erfið ákvörðun að hafa hann á bekknum en hann tók því eins og maður. Svo kemur hann inn á með frábært hugarfar og var virkilega góður fyrir okkur."
Rangstaða var mjög oft dæmd á Fylki. Heimir var aðspurður hvort að tímasetning á hlaupum verði aðalatriðin á næstu æfingum.
"Já tímasetning á hlaupum og fyrirgjafir. Ég held að markmaðurinn þeirra hefur gripið einhverjar 10 fyrirgjafir en þær voru ekki nógu góðar."
Sjá má viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að ofan.