Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 30. september 2020 09:21
Magnús Már Einarsson
Foden og Greenwood ekki í hópnum eftir atvikið á Íslandi
Mynd: Getty Images
Enskir fjölmiðlar segja frá því í dag að Phil Foden og Mason Greenwood verði ekki í enska landsliðshópnum sem verður tilkynntur á morgun.

Eins og frægt er voru Foden og Greenwood reknir heim eftir að hafa boðið tveimur stúlkum upp á hótel enska landsliðsins á Íslandi í byrjun mánaðarins.

Gareth Southgate, landsliðsþjálfari, hefur farið yfir stöðuna undanfarnar vikur og hann er á því að það sendi röng skilaboð að velja leikmennina í hópinn.

Harry Maguire, varnarmaður Manchester United, kemur væntanlega inn í hópinn á ný en hann var ekki með í síðustu leikjum gegn Íslandi og Danmörku.

Maguire var tekinn úr hópnum fyrir leikina eftir að hann var ákærður fyrir líkamsárás í Grikklandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner