Fotbolti.net
30.10.26 - 10:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Grétar Snær yfirgefur FH (Staðfest) - Fer hann í Hauka?

Grétar Snær yfirgefur FH (Staðfest) - Fer hann í Hauka?
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grétar Snær Gunnarsson hefur yfirgefið FH en samningur hans við félagið er að renna út.

Grétar er fæddur árið 1997 og kom til félagsins frá grönnunum í Haukum í 2. flokki og er hann sterklega orðaður við endurkomu í Hauka.

2016 lék hann sína fyrstu meistaraflokksleiki. 2017 var hann lánaður í HK og 2018 til HB í Færeyjum hvar hann varð Færeyjarmeistari.

Hann lék svo með Víkingi Ólafsvík, Fjölni og tvö og hálft tímabil með KR áður en hann sneri aftur í Hafnarfjörðinn sumarið 2023.
Arnór Borg verður ekki áfram hjá FH (Staðfest)
TENGT EFNI

Arnór Borg verður ekki áfram hjá FH (Staðfest)

Grétar er örvfættur leikmaður sem getur bæði spilað á miðjunni og í vörninni. Á liðnu tímabili byrjaði hann átján leiki í liði FH en kom ekkert við sögu í síðustu fjórum leikjunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.