31.01.03 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Sorin til Barcelona. (Staðfest)
Argentínumaðurinn Juan Pablo Sorin sem hefur verið í láni hjá Lazio frá brasilíska félaginu Cruzeiro gekk í dag til liðs við Barcelona á lánssamningi út tímabilið. Sorin er 26 ára gamall varnarmaður, hann fór í gegnum læknisskoðun hjá Barca í dag og skrifaði svo undir samninginn.
