Lyon er búið að næla sér í Amin Sarr, 21 árs framherja Heerenveen í Hollandi. Franska stórveldið borgar rúmlega 12 milljónir evra fyrir sóknarmanninn snögga og stæðilega.
Sarr er kominn með 5 mörk og 6 stoðsendingar í 20 leikjum á tímabilinu og þá gerði hann 3 mörk í 10 leikjum með U21 landsliði Svía.
Þessi félagsskipti auka líkurnar á að Southampton takist að krækja í Moussa Dembele, sóknarmann Lyon sem rennur út á samning eftir tímabilið.
Sarr á í heildina 11 mörk og 7 stoðsendingar í 35 leikjum með Heerenveen, eftir að hafa upprunalega vakið athygli á sér á láni hjá Mjällby.
"C'est un transfert de rêve, dans un club extraordinaire !"
— Olympique Lyonnais (@OL) January 30, 2023
?? Amin Sarr rejoint la #TeamOL ????????
Välkommen Amin ! ????????
#Sarr2027 pic.twitter.com/KasbCEmHJP
Athugasemdir