Fotbolti.net
31.03.18 - 12:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Gibson farinn frá Sunderland eftir ölvunarakstur (Staðfest)

Gibson farinn frá Sunderland eftir ölvunarakstur (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Darron Gibson og Sunderland hafa komist að samkomulagi um að leikmaðurinn yfirgefi félagið.

Þetta gerist tveimur vikur eftir að hann var settur í bann hjá félaginu, eftir að hafa gerst sekur um ölvunarakstur.
Gibson keyrði ölvaður á fjóra kyrrsetta bíla, á sama degi og Sunderland var að spila leik í Championship-deildinni.

Gibson, sem hefur lítið spilað á tímablinu vegna meiðsla, á að mæta fyrir rétt þann 17. apríl.

Þetta var ekki í fyrsta sinn sem Gibson, sem er fyrrum leikmaður Manchester United og Everton, kemur sér í vandræði fyrir að vera undir áhrifum áfengis. Eftir æfingaleik á síðasta undirbúningstímabili fór hann á djammið og hraunaði yfir nokkra liðsfélaga sína.

Þetta hefur verið skelfilegt tímabilið fyrir Sunderland. Liðið er á botni Championship-deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.