Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mið 31. mars 2021 12:30
Magnús Már Einarsson
Haukur tekur við Tindastóli (Staðfest)
Haukur til vinstri og Konráð til hægri.
Haukur til vinstri og Konráð til hægri.
Mynd: Tindastóll
Haukur Skúlason hefur verið ráðinn þjálfari Tindastóls í 3. deild karla en félagið greindi frá þessu í dag.

Haukur tekur við af Jamie McDonough en Tindastóll tilkynnti um starfslok hans um síðustu helgi.

Konráð Sigurðsson mun vera spilandi aðstoðarþjálfari með Hauki.

„Þeir Haukur og Konráð hafa stýrt æfingum liðsins það sem af er undirbúningstímabilinu og munu leiða liðið í baráttunni í 3.deildinni í sumar," segir á heimasíðu Tindastóls.

Tindastóll endaði í sjöunda sæti í 3. deildinni í fyrra.
Athugasemdir
banner
banner
banner