Man Utd skoðar aðra kosti - Arsenal heldur áfram að reyna við Gyökers - Calhanoglu á förum frá Inter?
   sun 15. júní 2025 13:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Nánast eins og þegar barnið manns nær stórum áfanga"
Logi Tómasson er mættur í topplið í Tyrklandi.
Logi Tómasson er mættur í topplið í Tyrklandi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það hefur gengið mjög vel hjá Loga síðustu ár.
Það hefur gengið mjög vel hjá Loga síðustu ár.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Logi sullar mjólk yfir Sölva eftir bikartitilinn 2021.
Logi sullar mjólk yfir Sölva eftir bikartitilinn 2021.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingurinn Logi Tómasson gekk á dögunum í raðir tyrkneska félagsins Samsunspor. Logi tók miklum framförum hjá Víkingi fyrir um fjórum árum síðan. Hann var lánaður til FH sumarið 2020, var svo að miklu leytinu til varamaður fyrir Atla Barkarson sumarið 2021, en eftir það eignaði hann sér stöðuna og var besti vinstri bakvörður Bestu deildarinnar, mikilvægur hlekkur í sóknarleik Víkings.

Í ágúst 2023 var hann svo seldur til Strömsgodset og núna, tæpum tveimur árum síðar, hefur hann tekið næsta skref; er mættur lið sem endaði í 3. sæti tyrknesku úrvalsdeildarinnar.

Hjá Víkingi fékk hann leiðsögn frá reynslumiklum mönnum, tveir þeirra náðu langt sem atvinnumenn og landsliðsmenn. Það eru þeir Kári Árnason og Sölvi Geir Ottesen. Fótbolti.net ræddi við Sölva Geir, þjálfara Víkings, um Loga og hans félagaskipti.

„Það er mjög gott að sjá þegar menn leggja mikla vinnu í eitthvað og uppskera svo á endanum. Það hefur gengið vel hjá Loga frá því að hann byrjaði að spila eins og maður með Víkingum á sínum tíma, byrjaði að þróa sinn leik og kaupa það sem var kannski búið að reyna segja við hann í mörg ár. Það er mjög gefandi að sjá honum ganga vel. Þegar Logi kom í landsliðið var ég í teyminu. Þetta er nánast eins og þegar barnið manns nær einhverjum stórum áfanga. Mér þykir rosalega vænt um Loga, spilaði með honum og var í kringum hann sem aðstoðarþjálfari. Manni þykir vænt um leikmenn sem maður er búinn að leggja mikið í og virkilega gaman að sjá hvað honum hefur verið að ganga vel í Noregi. Núna er hann búinn að taka skref til Tyrklands," sagði Sölvi.

„Ég sendi á hann um daginn að þetta væri bara stoppistöð, hann skyldi halda áfram að vinna í sínu og reyna ná eins langt og hann getur. Maður sá það alveg strax í byrjun þegar maður kom til Víkings hvað í honum bjó, hvaða hæfileika hann hafði og hvað hann gæti náð langt. Maður sá strax að hann gæti náð þessu 'leveli' sem hann er kominn á í dag."

Mín tilfinning og það sem maður hefur heyrt er að þú og Kári hafið farið svolítið í hausinn á Loga, hjálpað honum með að halda einbeitingu og slíkt, er það rétt?

„Jájá," sagði Sölvi og hló.

„Það var eina sem var vandamálið, hausinn á honum. Hausinn er oft það sem skilur á milli þeirra sem fara út og fara ekki út. Á sínum tíma þurfti Logi að fara í gegnum ákveðna sjálfsskoðun. Hann sá oft á tíðum ekki vandamálin hjá sér, eða vildi ekki horfast í augu við þau. Þú verður að geta verið gagnrýnin á sjálfan þig og geta kennt sjálfum þér um þegar illa fer, þú lærir ekkert ef þú ert ekki tilbúinn að gagnrýna sjálfan þig. Við vorum að reyna hjálpa honum að reyna sjá það. Svo hjálpuðum við honum með varnarleik, hvernig maður beitir sér, halda einbeitingunni og missa ekki hausinn þegar það gengur annað hvort vel eða illa. Það var miklum tíma eytt í þetta hjá honum."

„Ég vil líka meina að framheilinn þroskist ekki oft að fullu fyrr en 25 ára, ég held að hafi líka spilað inn í þetta,"
sagði Sölvi.
Athugasemdir