Fotbolti.net
31.03.26 - 16:12
Elvar Geir Magnússon

Eldingaviðvörun og allir kallaðir inn úr upphitun

Leitið skjóls.

Leitið skjóls.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Eimskip
Haítí og Ísland eru að fara að mætast í vináttulandsleik sem átti að hefjast 16:30 í Toronto í Kanada. Ljóst er að það verða tafir á því að leikurinn verði flautaður á.

Í miðri upphitun fyrir leikinn kom skyndilega eldingaviðvörun og leikmönnum var skipað að fara inn í klefa af öryggisráðstöfunum. Upphitun hefst aftur 16:34 (12:34 að staðartíma).

Það er því ljóst að það verða tafir á því að leikurinn fer af stað.

Uppfært: Stefnt er að því að leikurinn hefjist 17:00
Byrjunarlið Íslands - Tíu breytingar: Orri á bekknum en Gylfi og Aron byrja
TENGT EFNI

Byrjunarlið Íslands - Tíu breytingar: Orri á bekknum en Gylfi og Aron byrja

HM í sumar verður haldið í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó og mega fótboltaunnendur búast við talsverðum töfum og frestunum vegna veðurs, allavega ef miða á við HM félagsliða í fyrra.

Leikur Haítí og Íslands er í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net og þar er fylgst grannt með framvindu mála.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.