Fotbolti.net
31.03.26 - 19:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Ísland missti aftur niður forystu

Íslenska landsliðið gerði jafntefli gegn Haítí.

Íslenska landsliðið gerði jafntefli gegn Haítí.

Canon

Mynd: EPA

Eimskip
Haítí 1 - 1 Ísland
0-1 Gylfi Þór Sigurðsson ('61 )
1-1 Wilson Isidor ('88 )
Lestu um leikinn

Ísland gerði jafntefli gegn Haítí í mjög svo bragðdaufum vináttulandsleik sem fram fór í Kanada í kvöld.
Sjáðu markið: Gylfi núna kominn tveimur mörkum fram úr næstu mönnum
TENGT EFNI

Sjáðu markið: Gylfi núna kominn tveimur mörkum fram úr næstu mönnum

Leikurinn var lengi að byrja út af eldingaviðvörun við völlinn. Leikmenn þurftu að fara inn í upphitun, komu svo út og þurftu að fara aftur inn. Leiknum hefði verið aflýst þriðja viðvörunin hefði komið, en sem betur fer gat leikurinn farið í gang.

Það var fátt um fína drætti í fyrri hálfleik og var staðan markalaus að honum loknum.

En eftir klukkutíma leik braut Gylfi Þór Sigurðsson ísinn með sínu 28. landsliðsmarki. Logi Tómasson og Stefán Teitur Þórðarson gerðu vel í undirbúningnum og Gylfi kláraði vel.

Eftir því sem leið á seinni hálfleikinn þá setti Haítí meiri kraft í sóknarleik sinn og það skilaði þeim jöfnunarmarki undir lok. Þar var að verki Wilson Isidor, sóknarmaður Sunderland.

Ísland gerði því jafntefli í báðum leikjum sínum í Kanada, fyrst gegn heimamönnum og svo gegn Haítí. Í báðum þessum leikjum missti íslenska liðið niður forystu, 2-0 gegn Kanada og 1-0 í kvöld. Eitthvað sem þarf klárlega að laga.
Ísland missti aftur niður forystu
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.