Fotbolti.net
31.03.26 - 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Setur fram nýja kenningu um Ben White málið

Ben White.

Ben White.

Canon

Mynd: EPA

Ný kenning hefur komið fram um það af hverju Ben White yfirgaf enska landsliðshópinn á HM 2022, eftir að varnarmaðurinn sneri aftur í landsliðið fyrir stuttu.

White spilaði á dögunum sinn fyrsta landsleik síðan hann yfirgaf hópinn á HM í Katar árið 2022 vegna persónulegra ástæðna. Í kjölfarið gaf hann ekki kost á sér á meðan Gareth Southgate var landsliðsþjálfari.
Baulað á Ben White í endurkomunni - „Mátt ekki taka þessu persónulega“
TENGT EFNI

Baulað á Ben White í endurkomunni - „Mátt ekki taka þessu persónulega“

Fréttir frá 2022 bentu til þess að brotthvarf hans úr hópnum hafi stafað af ágreiningi við aðstoðarþjálfara Southgate, Steve Holland, þó það hafi aldrei verið staðfest opinberlega.

Núna hefur Adrian Durham hjá talkSPORT sett fram nýja kenningu um hvað gerðist og hvetur hann White til að stíga fram og skýra málið.

„Mér er sagt að þetta hafi gerst með Ben White... Leikmönnunum var sagt að horfa á myndbönd af andstæðingunum og þeir fengu myndbönd sem þeir gátu horft á í tölvunni, spjaldtölvunni eða hvað sem er," sagði Durham.

„Hann ákvað að horfa ekki og þeir sem voru leikgreina fyrir enska landsliðið vissu af því. Þeir vissu hverjir væru að horfa á myndböndin og hverjir ekki. Þegar hann var svo spurður út í þetta, þá varð hann fúll og ákvað að hætta."

„Ef það er satt, af hverju í ósköpunum ætti Thomas Tuchel að vilja fá hann aftur í hópinn? Ef það er ekki satt, þá biðst ég afsökunar en fáum sannleikann fram."
White í endurkomunni í enska landsliðið.

White í endurkomunni í enska landsliðið.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.