Fotbolti.net
31.03.26 - 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Skýtur skökku við að á Íslandi séum við að berjast í því"

Haítí fagnar jöfnunarmarki sínu.

Haítí fagnar jöfnunarmarki sínu.

Canon

Mynd: EPA

Eimskip
Varnarleikurinn heldur áfram að vera akkilesarhæll íslenska landsliðsins. Ísland gerði í kvöld jafntefli gegn Haítí, 1-1, eftir að hafa tekið forystu í leiknum. Í fyrri leiknum í þessum glugga gerði liðið 2-2 jafntefli við Kanada.

Kári Árnason og Bjarni Guðjónsson, fyrrum landsliðsmenn, rýndu í leikinn gegn Haítí á Sýn Sport og fór umræðan út í leikstíl íslenska liðsins og framhaldið þar sem stefnan hlýtur að vera að komast á EM 2028.
Ísland missti aftur niður forystu
TENGT EFNI

Ísland missti aftur niður forystu

„Arnar (Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari) hefur sagt það opinberlega að hann vilji ekki spila á sömu gildum og á sama hátt og var gert," sagði Kári.

„En við erum ekki að fara að moka inn mörkum gegn þessum betri liðum. Við verðum að fókusera á varnarleikinn finnst mér."

„Ástæðan fyrir því að maður verður pínulítið pirraður yfir stöðunni er út af því að við vitum að liðið er gott. Við getum skorað fullt af mörkum. Það vantar bara örlítið meira í því að sækja gömlu gildin og vera stoltari af því að halda markinu hreinu. Að það sé stolt að fá ekki á sig mark," sagði Bjarni og hélt áfram:

„Eftir mikinn 'possession' leik undanfarin ár er fótboltinn að færast yfir í hitt. Real Madrid vann Man City 3-0 á Bernabeu og var 30% með boltann. City átti ekki séns. Þá skýtur skökku við að við á Íslandi séum að berjast í því að hugsa svona mikið um að halda í boltann," sagði Bjarni.

„Ég er 100 prósent sammála," sagði Kári.
Bjarni Guðjónsson hér fyrir miðju.

Bjarni Guðjónsson hér fyrir miðju.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.