31.07.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Craddock til Wolves. (Staðfest)
Wolves hefur keypt Jody Craddock frá Sunderland á 1,75 milljónir punda. Craddock sem er 28 ára varnarmaður stóðst læknisskoðun hjá Úlfunum í gær og gengið hefur verið frá kaupunum. Craddock kom til Sunderland frá Cambridge í júlí árið 1997 á 350 þúsund pund og lék hann alls 168 leiki með Sunderland. Vörnin hjá Wolves verður gjörbreytt í vetur en Oleg Luzhny og Isaac Okorokwo auk Craddock verða væntanlega í byrjunarliði.
