31.07.12 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Anton Bjarnason aftur í ÍBV (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

ÍBV hefur fengið Anton Bjarnason aftur í sínar raðir en hann hefur verið á láni hjá Haukum það sem af er sumars.
Anton gekk í raðir Hauka síðastliðið vor en hann hefur komið við sögu í átta leikjum hjá liðinu í fyrstu deildinni í sumar.

Anton hefur ekki komið við sögu í síðustu leikjum Hauka og hann var ekki í leikmannahópnum gegn Hetti um helgina.
Þessi 25 ára gamli bakvörður og kantmaður hefur nú fengið leikheimild með ÍBV á nýjan leik.
Þá er framherjinn Gauti Þorvarðarson kominn aftur í ÍBV eftir að hafa verið á láni hjá KFS í 3. deildinni í sumar.
Eyjamenn munu líklega missa enska miðjumanninn George Baldock í byrjun ágúst og þá er Ragnar Leósson einnig á leið í nám í Bandaríkjunum.