31.07.12 - 10:26
Magnús Már Einarsson
Darri Steinn í ÍR (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍR hefur fengið kantmanninn Darra Stein Konráðsson á láni frá Stjörnunni út tímabilið.
Þessi 19 ára gamli leikmaður hefur leikið fjóra leiki með Stjörnunni í Pepsi-deildinni í sumar.
Þá skoraði hann fyrir Stjörnuna í 32-liða úrslitum Borgunarbikarsins gegn Gróttu.
Darri gæti leikið sinn fyrsta leik með ÍR annað kvöld þegar liðið mætir Fjölni á útivelli í fyrstu deildinni.
Þá skoraði hann fyrir Stjörnuna í 32-liða úrslitum Borgunarbikarsins gegn Gróttu.
Darri gæti leikið sinn fyrsta leik með ÍR annað kvöld þegar liðið mætir Fjölni á útivelli í fyrstu deildinni.
