31.07.12 - 14:00
Magnús Már Einarsson
Manuel Almunia til Watford (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Watford hefur fengið spænska markvörðinn Manuel Almunia til liðs við sig frá Arsenal.
Almunia skrifaði undir eins árs samning við Watford en samningur hans við Arsenal rann út á dögunum.
Almunia lék samtals 175 leiki á ferli sínum hjá Arsenal en hann hefur ekki átt fast sæti í liðinu síðan Wojciech Szczesny tók við keflinu í lok árs 2010.

Watford hefur einnig fengið varnarmanninn Fitz Hall frá QPR sem og fimm leikmenn á láni frá Udinese og Granada en bæði þau félög eru í eigu Pozzo fjölskyldunnar sem keypti Watford á dögunum.
Gianfranco Zola tók við Watford á dögunum en hann mun stýra liðinu í Championship deildinni á komandi tímabili.

Heimild: BBC