31.07.12 - 13:01
Elvar Geir Magnússon
Trausti Sigurbjörnsson í ÍR (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson

Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson
Markvörðurinn Trausti Sigurbjörnsson hefur skrifað undir hjá 1. deildarliði ÍR og gengur til liðs við félagið frá Þrótti nú á lokadegi félagaskiptagluggans.
Trausti er 22 ára og gekk til liðs við Þrótt fyrir tímabilið í fyrra frá Leikni. Hann stóð sig mjög vel í marki liðsins en sleit krossband um mitt mót. Hann hefur nú náð sér af meiðslunum.
Þróttur fékk til sín Ögmund Ólafsson frá HK vegna meiðsla Trausta og hefur hann varið mark liðsins í sumar.
ÍR-ingar eru eini stigi frá fallsæti, með tveimur stigum minna en Þróttur. Þórir Guðnason og Brynjar Örn Sigurðsson hafa varið mark ÍR í sumar.