Fotbolti.net
31.07.12 - 13:59
Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik lánar Jökul Elísabetarson í KV (Staðfest)

Jökull Elísabetarason er farinn í 2. deildina.

Jökull Elísabetarason er farinn í 2. deildina.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Breiðablik hefur lánað miðjumanninn Jökul Ingason Elísabetarson til liðs KV í 2. deildinni en þetta var staðfest á Sport.is í dag.
Jökull hefur spilað 10 leiki með liði Breiðabliks í sumar og kom inná sem varamaður á 82. mínútu þegar liðið vann ÍBV í Pepsi-deildinni í fyrrakvöld.

Hann var Íslandsmeistari með liði Breiðabliks sumarið 2010 og þótti spila sérstaklega vel með liðinu það sumarið.

Jökull hóf feril sinn með KR og hefur einnig spilað með Víkingum auk þess að spila í Bandaríkjunum þar sem hann var í háskóla.

KV sem spilar leiki sína á gervigrasvellinum hjá KR er a toppi 2. deildarinnar. Liðið er byggt upp að mestu leiti á gömlum KR-ingum og þannig er markahæsti leikmaður liðsins Gunnar Kristjánsson.

,,Stjórn KV býður Jökul hjartanlega velkominn aftur heim í Vesturbæinn og fagnar því að hann hafi ákveðið að leggja sitt af mörkum í baráttu liðsins á toppi 2. deildar. Það er alltaf gaman að sjá Vesturbæinga spila í Vesturbænum. Jökull er geysilega reyndur og hæfileikaríkur knattspyrnumaður sem þekkir vel til liðsins. Reynsla hans mun nýtast liðinu vel og hlökkum við til að sjá hann aftur í svart/hvítu,\" sagði í yfirlýsingu félagsins.

Heimild: Sport.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.