31.07.12 - 14:18
Elvar Geir Magnússon
Curtis Good til Newcastle (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Newcastle United hefur fengið 19 ára miðvörð frá ástralska A-deildarliðinu Melbourne Heart. Curtis Good heitir leikmaðurinn og hefur skrifað undir sex ára samning.
Kaupverð var ekki gefið upp.
Kaupverð var ekki gefið upp.
Good á að baki leiki fyrir U19 landslið Ástralíu og er hann þriðji leikmaðurinn sem Newcastke kaupir í sumar. Áður hafði félagið fengið Gael Bigirimana og Romain Amalfitano.
John Aloisi, stjóri Melbourne Heart, segir að salan á Good sé mikil viðurkenning fyrir uppeldisstarf félagsins og stórt tækifæri fyrir leikmanninn.
John Aloisi, stjóri Melbourne Heart, segir að salan á Good sé mikil viðurkenning fyrir uppeldisstarf félagsins og stórt tækifæri fyrir leikmanninn.
