Fotbolti.net
31.07.12 - 15:16
Magnús Már Einarsson

Höttur fær Svartfelling í markið (Staðfest)

Eysteinn Húni Hauksson þjálfari Hattar.

Eysteinn Húni Hauksson þjálfari Hattar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Höttur hefur náð samkomulagi við markvörðinn Veljko Bajkovic um að hann leiki með liðinu út tímabilið.

Bajkovic er 31 árs en hann kemur frá Svartfjallalandi þar sem hann var síðast á mála hjá FK Lovćen.
Höttur hefur verið í leit að markverði síðan enski markvörðurinn Ryan Allsop yfirgaf félagið og gekk í raðir Leyton Orient í byrjun mánaðarins.

Allsop var frábær í marki Hattar í byrjun móts en hann hélt hreinu í fjórum af fyrstu átta leikjum liðsins.

Bjarni Viðar Hólmarsson varði mark Hattar í fyrstu tveimur leikjunum eftir brotthvarf Allsop og í síðustu tveimur leikjum hefur 2. flokks markmaðurinn Anton Helgi Loftsson staðið á milli stanganna.

Bajkovic mun hins vegar væntanlega standa í rammanum þegar Höttur fær topplið Víkings frá Ólafsvík í heimsókn í fyrstu deildinni annað kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.