31.07.12 - 15:36
Elvar Geir Magnússon
Kristján Gauti Emilsson í FH (Staðfest)

Mynd: David Rawcliffe/Propaganda

Mynd: David Rawcliffe/Propaganda
Kristján Gauti Emilsson hefur fengið leikheimild með FH og er löglegur með liðinu í næsta leik.
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, staðfesti þetta í samtali við fjölmiðla í gær og hefur KSÍ nú veitt honum leikheimild sem tekur gildi á morgun.

Kristján Gauti er fæddur 1993 og er uppalinn hjá FH en hann gekk til liðs við Liverpool í lok árs árið 2009.
Kristján Gauti hefur æft með FH-ingum að undanförnu, hann á að baki þrjá leiki með meistaraflokki FH en hann lék þá þegar liðið varð Íslandsmeistari árið 2009.
FH-ingar eru í harðri titilbaráttu í Pepsi-deildinni og verður spennandi að sjá hvernig Kristján mun standa sig með liðinu.