31.07.12 - 16:08
Magnús Már Einarsson
Árni Vilhjálmsson í Hauka á láni (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

Haukar hafa fengið framherjann Árna Vilhjálmsson á láni frá Breiðabliki út tímabilið.
Árni var í byrjunarlið Breiðabliks á vinstri kantinum gegn ÍBV í fyrradag en hann hefur nú farið til Hauka á láni.

,,Er buinn ad skrifa undir hja haukum, 90 min i hverri viku #spilaform #rauðiherinn,\" skrifaði Árni á Twitter síðu sína í dag.
Árni, sem er 18 ára, hefur skorað tvö mörk í tíu leikjum í Pepsi-deildinni í sumar en hann kom inn á sem varamaður og skoraði mark Blika í 1-1 jafntefli gegn ÍA í síðustu viku
Árni gæti leikið sinn fyrsta leik með Haukum þegar liðið heimsækir Þór á fimmtudagskvöld.