31.07.12 - 17:00
Magnús Már Einarsson
Hull fær Ben Amos á láni frá Manchester United (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Hull hefur fengið markvörðinn Ben Amos á láni frá Manchester United en samningurinn gildir út tímabilið.
Þessi 22 ára gamli leikmaður lék fjóra leiki með Manchester United á síðasta tímabili en hann spilaði meðal annars sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni.

Amos hefur áður verið á láni hjá Peterborough og Oldham en hann mun nú eyða vetrinum í Hull.
Steve Bruce tók við stjórnartaumunum hjá Hull fyrr í sumar en hann er að vinna að því að styrkja leikmannahóp sinn og fyrr í vikunni fékk hann son sinn Alex Bruce frá Leeds.

Heimild: BBC