31.07.12 - 17:20
Magnús Már Einarsson
Steven Pienaar aftur til Everton (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Everton hefur fengið Steven Pienaar aftur til liðs við sig frá Tottenham á 4,5 milljónir punda.
Þessi þrítugi miðjumaður fór til Tottenham á þrjár milljónir punda í janúar árið 2011.
Hann náði hins vegar ekki að festa sig í sessi hjá Tottenham og síðari hlutann á síðasta tímabili var hann í láni hjá Everton.

Þá skoraði þessi knái Suður-Afríkumaður fjögur mörk í 14 leikjum í ensku úrvalsdeildinni og hann hefur nú skrifað undir fjögurra ára samning við Everton.
,,Ég er ánægður með að vera hér. Það tók nokkrar vikur að ganga frá þessu en ég er ánægður með að vera kominn til baka og hlakka til að spila með Everton,\" sagði Pienaar í dag.

Heimild: Sky