Fotbolti.net
31.07.12 - 21:25
Ívan Guðjón Baldursson

Ludovic Giuly kominn til Lorient (Staðfest)

Ludovic Giuly kominn til Lorient (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ludovic Giuly mun spila í frönsku efstu deildinni á næsta tímabili eftir að hafa skrifað undir eins árs samning við Lorient.

Giuly, sem er 36 ára gamall, spilaði með Monaco á síðasta tímabili þar sem hann skoraði þrjú mörk í 24 leikjum.
Giuly hefur leikið 384 deildarleiki í efstu deild í Frakklandi með þremur mismunandi liðum en auk þess hefur hann verið leikmaður Barcelona á Spáni og Roma á Ítalíu.

,,Þetta er félag sem hentar mér vel vegna þess að það nýtur þess að spila skemmtilega knattspyrnu,\" sagði Giuly um félagsskiptin.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.