Fotbolti.net
31.07.18 - 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Bielsa nælir í lánsmann frá Man City (Staðfest)

Jack Harrison.

Jack Harrison.

Canon

Mynd: Getty Images

Leeds United gekk í gær frá lánssamningi við Jack Harrison, kantmann úr herbúðum Manchester City.

Harrison, sem er 21 árs, mun spila í Championship-deildinni með Leeds á þessari leiktíð.
Harrison kom til Manchester City í janúar síðastliðnum frá New York City FC, sem er systurfélag Man City. Harrison fór 14 ára til Bandaríkjanna og lék í MLS-deildinni áður en hann hélt aftur til Englands og fór í Manchester City.

Harrison var lánaður strax til Middlesbrough á síðustu leiktíð og spilaði fjóra leiki í Championship-deildinni.

Argentínumaðurinn Marcelo Bielsa tók við Leeds í sumar og er Harrison fjórði leikmaðurinn sem Bielsa fær. Lewis Baker og Jamal Blackman komu á láni frá Chelsea og Barry Douglas var keyptur frá Úlfunum.

Harrison gæti leikið sinn fyrsta leik fyrir Leeds gegn Stoke á sunnudaginn í 1. umferð Championship-deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.