Fotbolti.net
31.07.18 - 10:07
Elvar Geir Magnússon

Egill Makan, Teitur og Óskar lánaðir í Þrótt (Staðfest)

Egill hefur spilað þrjá Pepsi-deildarleiki með FH í sumar.

Egill hefur spilað þrjá Pepsi-deildarleiki með FH í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Egill Darri Makan Þorvaldsson er einn af þremur leikmönnum sem Þróttarar hafa fengið á láni.

Egill er sautján ára bakvörður sem hefur leikið þrjá leiki með FH í Pepsi-deildinni í sumar og þrjá leiki í Mjólkurbikarnum.
Varnarmaðurinn Teitur Magnússon kemur einnig á láni frá FH. Teitur er unglingalandsliðsmaður fæddur 2001 og spilaði einn leik í Pepsi-deildinni í fyrra. Félög á borð við Stuttgart og Parma hafa verið að horfa til hans.

Þá fá Þróttarar Óskar Jónsson lánaðan frá Breiðabliki. Óskar er 21 árs miðjumaður sem lék fyrr í sumar á lánssamningi hjá ÍR.

Miklar hræringar hafa verið á leikmannamálum Þróttar í sumarglugganum en liðið er í fimmta sæti Inkasso-deildarinnar og mætir ÍR á morgun miðvikudag.

Óskar Jónsson hefur verið lánaður í Þrótt Reykjavík. Óskar var á láni hjá ÍR fyrri hluta mótsins í sumar en færir sig nú um set í höfuðborginni. #blikar pic.twitter.com/oQNih9uAod

— Breiðablik FC (@BreidablikFC) July 30, 2018
Teitur Magnússon.

Teitur Magnússon.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.