31.07.18 - 10:56
Arnar Daði Arnarsson
Oliver klárar tímabilið með Blikum (Staðfest)

Oliver í leik með Blikum í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Oliver í leik með Blikum í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik hefur náð samkomulagið við norska félagið, Bodö/Glimt um að miðjumaðurinn Oliver Sigurjónsson klári tímabilið með Breiðablik í Pepsi-deildinni.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Breiðablik á Twitter-síðu sinni.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Breiðablik á Twitter-síðu sinni.
Oliver kom til Breiðabliks á láni frá norska félaginu fyrir tímabilið og var samningurinn til lok júlí mánaðar. Nú hefur hinsvegar verið samið um að Oliver klári tímabilið með sínu uppeldisfélagi sem eru í mikilli toppbaráttu ásamt Val og Stjörnunni.
Oliver var í viðtali í útvarpsþætti Fótbolta.net á laugardaginn þar sem hann ræddi einmitt um þann möguleika hvort hann yrði áfram hjá Breiðabliki út tímabilið.
Oliver hefur leikið 12 leiki með Blikum í Pepsi-deildinni í sumar en Breiðablik er stigi á eftir Val sem er á toppi deildarinnar.
Sjá einnig:
Leiðin út - Oliver Sigurjónsson

Breiðablik hefur náð samkomulagi við Bodø/Glimt um að Oliver Sigurjónsson klári tímabilið með Blikum 💚 pic.twitter.com/rVqGR4kt9B
— Breiðablik FC (@BreidablikFC) July 31, 2018