Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   sun 27. júlí 2014 22:27
Jóhann Óli Eiðsson
Stefán Logi: Garðar laug að mér
Stefán Logi Magnússon.
Stefán Logi Magnússon.
Mynd: Ingólfur Hannes Leósson
Stefán Logi Magnússon, markvörður KR, var svekktur eftir 1-1 jafntefli liðsins gegn Breiðabliki í Pepsi-deildinni í kvöld.

Stefán Logi fékk rauða spjaldið í síðari hálfleik fyrir að brjóta á Elfari Árna Aðalsteinssyni fyrir utan vítateig en KR-ingar voru ósáttir með þann dóm þar sem Aron Bjarki Jósepsson var með boltann.

,,Ég kiksa boltann og Aron er með hann þannig séð. Blikinn hleypur inn í mig og mér fannst þetta aldrei vera rautt, því miður," sagði Stefán Logi eftir leik.

,,Mér sárnaði meira að Garðar (Örn Hinriksson, dómari) laug að mér. Hann sagðist hafa talað við línuvörðinn en línuvörðurinn sagði að hann réði engu um þetta því að Garðar réði þessu."

Árni Vilhjálmsson skoraði mark Blika í leiknum. ,,Það er klár hendi, hann tekur hann með sér og hann viðurkenni það eftir markið. Svona er þetta í fótbolta, stundum falla hlutirnir með þér og sumt ekki," sagði Stefán Logi sem viðurkennir að jafnteflið sé sárt.

,,Það er mjög súrt. Við gáfumst ekki upp manni færri og reyndum að sækja en inn vildi ekki boltinn og svona er þetta."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner