KR vann 2-1 sigur gegn FH í opnunarleik Fótbolta.net mótsins í kvöld en leikið var í Fífunni. Það var vel mætt á leikinn sem var hin fínasta janúarskemmtun. Finnur Orri Margeirsson lék á miðju KR-liðsins en Fótbolti.net ræddi við hann að leik loknum.
„Það var hörkustemning og þetta lífgar upp á janúarmánuðinn. Gott að byrja á flottum sigri," sagði Finnur sem tók undir það að miðað við janúarleik hafi verið talsverður hiti og harka í leiknum.
„Ég veit ekki hvort það sé eitthvað uppsafnað eða hvað það er. Auðvitað er það miklu skemmtilegra. Ef öllum er sama er ekkert „fútt" í þessu. Það er fínt að fá aðeins að rífast og taka svo í spaðann á mönnum eftir leik."
FH-ingarnir voru ekki sáttir við sigurmark KR sem kom seint í leiknum. Almarr Ormarsson skoraði eftir að skallað hafði verið eftir því að leikurinn yrði stöðvaður vegna höfuðmeiðsla.
„Ég skil þá mjög vel. Við vorum sjálfir búnir að kalla að það væru höfuðmeiðsli. Ég veit ekki hvort það hafi tekið markvörðinn úr jafnvægi eða hvað það var. En auðvitað á að stoppa leikinn þegar það eru klár höfuðmeiðsli," sagði Finnur en viðtalið má heyra í heild í spilaranum hér að ofan," sagði Finnur en viðtalið má heyra í heild í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir