Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 31. ágúst 2016 15:38
Magnús Már Einarsson
Liverpool selur Luis Alberto til Lazio (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Liverpool hefur selt framherjann Luis Alberto til ítalska félagsins Lazio á 4,7 milljónir punda.

Liverpool fær einnig 30% af næstu sölu á Alberto.

Brendan Rodgers keypti Alberto til Liverpool frá Sevilla á 6,8 milljónir punda árið 2013.

Þessi 23 ára gamli leikmaður náði aldrei að festa sig í sessi á Anfield en hann spilaði einungis tólf leiki með Liverpool.

Á síðasta tímabili skoraði Alberto sex mörk á láni hjá Deportivo La Coruna en hann var á láni hjá Malaga tímabilið þar á undan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner