Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   lau 24. júní 2017 19:52
Egill Sigfússon
Óskar Örn: Þá ert þú ekki búinn að fylgjast með deildinni
Óskar Örn Hauksson.
Óskar Örn Hauksson.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Óskar Örn Hauksson skoraði 3. mark KR-inga í dag rétt eftir að hafa fengið á sig víti sjálfur. Óskar sagði að það hefði verið léttir að ná strax inn marki.

Lestu um leikinn: KA 2 -  3 KR

„Þetta var mikilvægt mark þegar uppi var staðið og ég gaf þarna víti á einhvern furðulegan hátt en við erum ekkert að pæla í því núna."

Óskar var virkilega öflugur í loftinu í dag en gaf lítið fyrir að þetta væri eitthvað persónulegt met í unnum skallaboltum.

„ Þá hefur þú nú ekki verið að fylgjast með deildinni, þetta var bara eins og vanalega, ég er agætur í sköllunum og vann þá nokkra í dag og það er bara gaman að því."

KR er að fara að keppa í undankeppni Evrópudeildarinnar og kvaðst Óskar afar spenntur fyrir því verkefni.

„Það er alltaf gaman og tilbreyting að taka þátt í Evrópukeppninni og sérstaklega fyrir mig sem er búinn að spila á móti sömu liðunum í 20 ár, að fá að spila á móti nýjum mönnum. Það er alltaf gaman og kryddar sumarið."

Viðtalið má sjá í heild sinni í tækinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner