Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
banner
   lau 22. júlí 2017 19:39
Arnar Daði Arnarsson
Sif: Þetta var strembið eftir markið okkar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ótrúlegt svekkelsi. Þetta er ótrúlega sárt," sagði varnarmaðurinn Sif Atladóttir eftir 2-1 tap landsliðsins gegn Sviss á Tjarnarhæðinni í Hollandi í kvöld.

Lestu um leikinn: Ísland 1 -  2 Sviss

„Þetta var frekar þungt. Mér fannst við hafa tökin á leiknum áður en við skorum. Síðan veit ég ekki hvað gerist. Allt í einu vorum við að fá þær í andlitið á okkur, eitthvað sem við erum óvanar," sagði Sif en Ísland náði aðeins að vera með 1-0 forskot í leiknum í 10 mínútur.

„Það er mjög svekkjandi. Fanndís gerði ótrúlega vel í markinu. Við ætluðum að leggja upp með þetta en því miður náðum við ekki alveg að klára það. Markið var fallegt en þetta var strembið eftir það. Við verðum að læra af þessu, það er enn einn leikur eftir og þetta er ekki búið."

Sú rússneska með flautuna, Anastasia Pustovoitova átti hræðilegan leik. Vægast sagt.

„Maður vill ekki segja of mikið. Dómarar eru mannlegir og gera sín mistök. Ég set spurningarmerki við það að ég er varla búinn að sleppa boltanum í innköstum þá fáum við á okkur aukaspyrnu. Þetta er sárt því mér finnst við ekki vera á þeim stað, að það eigi að flauta á okkur í hvert einasta skipti sem við snertum leikmann. Þetta er contact íþrótt."

„Ég veit ekki hvað gerist á milli leikja. Í viðtölum við Sviss fyrir leik þá spila þau svolítið inn á grófleikann í okkur. Við erum að spila á fínni línu, við erum ekki upp með takkana í aðra leikmenn. Við ætlum ekki að láta þetta stjórna okkur. Við þurfum að halda áfram og klára okkar leiki," sagði Sif að lokum.

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.

Fótbolti.net er með öflugt teymi í Hollandi og er hægt að fylgjast með öllu bak við tjöldin á Snapchat (Fotboltinet), á Instagram og öðrum samskiptamiðlum okkar.

Leikir Íslands á EM:
Ísland 0-1 Frakkland
Ísland 1-2 Sviss
Ísland 0-3 Austurríki
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner