Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 21. október 2017 23:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Özil: Hlusta ekki á umræðuna
Mynd: Getty Images
Þjóðverjinn Mesut Özil hefur verið mikið í umræðunni að undanförnu vegna samningsmála hans.

Samningur hans við Arsenal rennur út næsta sumar og hefur hann meðal annars verið orðaður við Manchester United að undanförnu.

Hann birti mynd á Twitter í dag með textanum, „hlusta ekki á umræðuna."

Það verður því fróðlegt að sjá hvað gerist í málum Mesut Özil á næstunni.

Mesut Özil og félagar hans í Arsenal eiga mikilvægan leik fyrir höndum á morgun þegar þeir heimsækja Everton, leikurinn hefst klukkan 12:30.



Athugasemdir
banner
banner
banner