Man Utd líklegast að fá Olise - Man Utd til í að hlusta á tilboð í Rashford - Juve leiðir kapphlaupið um Greenwood
   mán 13. nóvember 2017 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Griezmann dreymir um að spila með Neymar og Mbappe
Mynd: Getty Images
Antoine Griezmann lætur sig um að dreyma að spila með Neymar og Kylian Mbappe, þetta viðurkennir hann sjálfur.

Griezmann er samningsbundinn Atletico Madrid til 2022, en miklar líkur eru á því að hann sé á förum, líklega næsta sumar.

Hann hefur hvað helst verið orðaður við Manchester United, en franska stórliðið Paris Saint-Germain hefur einnig verið nefnt sem mögulegur áfangastaður fyrir Griezmann. Hjá PSG spila Neymar og Mbappe, en þeir komu báðir til félagsins síðasta sumar.

„Dreymir mig um sóknarlínu með Mbappe, Neymar og Griezmann? Já," sagði hann við Telefoot.
Athugasemdir
banner
banner
banner