Guðjón Orri Sigurjónsson, markvörður Stjörnunnar, sleit hásin á æfingu liðsins í gærkvöldi. Þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net.
Guðjón Orri þarf því að fara í aðgerð en í kjölfarið verður hann frá í 5-6 mánuði.
Hann ætti því að vera klár í slaginn um það bil í byrjun móts næsta sumar.
Tvær vikur eru síðan Guðjón Orri gekk til liðs við Stjörnuna á nýjan leik en hann var á mála hjá Selfyssingum í sumar.
Guðjón er uppalinn hjá ÍBV en hann lék með Stjörnunni sumarið 2016.
Athugasemdir