Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 25. nóvember 2017 05:55
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
England í dag - Englandsmeistararnir heimsækja Anfield
Salah mætir sínum gömlu félögum í Chelsea í dag
Salah mætir sínum gömlu félögum í Chelsea í dag
Mynd: Getty Images
Þrettánda umferð ensku úrvalsdeildarinnar heldur áfram í dag en hún hófst í gærkvöldi.

Enginn hádegisleikur er í dag en það verða fimm leikir sem hefjast klukkan 15:00

Nýliðar Brighton fá heldur betur verðugt verkefni í dag en þeir heimsækja Old Trafford þar sem Manchester United mun bíða þeirra. Leikurinn á Old Trafford er sjónvarpsleikur dagsins.

Þá fær Tottenham stjóralausa West Brom í heimsókn.

Stórleikur dagsins er hins vegar síðdegisleikurinn. Þá mætast Liverpool og Englandsmeistarar Chelsea á Anfield.

Liverpool hafði góð tök á Chelsea á síðasta tímabili en rauði herinn náði í fjögur stig af sex mögulegum. Það verður fróðlegt að sjá hvort gengi Liverpool gegn Chelsea muni halda áfram í dag.

Laugardagur 25. nóvember:
15:00 Crystal Palace - Stoke
15:00 Man Utd - Brighton (Stöð 2 Sport)
15:00 Newcastle - Watford
15:00 Swansea - Bournemouth
15:00 Tottenham - West Brom
17:30 Liverpool - Chelsea (Stöð 2 Sport)
Athugasemdir
banner